![]() |
| -Ég heiti Gunnar Breki Ólafsson, og ég er sko orðinn 2 ára leikskólastrákur- |
|
|
Um mig:
Ég fæddist á LSH þann 11 mai 2007 kl 11:45 og var 4335 gr eða 17 og hálf mörk og 57 cm, stór og myndarlegur drengur. Fæðingin gekk vel, mamma byrjaði að fá verki kl 5 um morguninn en hélt að þetta væru fyrirvara verkir, síðan vaknaði hún aftur kl 7 og þá voru verkirnir orðnir frekar vondir og stutt á milli, þannig að kl 9 var farið upp á lansa og síðan fæddist ég kl 11:45 í Hreiðrinu svaka kosý.:o) Ljósan sem tók á móti mér heitir Rannveig og var allveg æði síðan var líka læknanemi sem heitir Hrefna Katrín viðstödd og var líka æði. Mamma mín heitir Tinna Sif '85 og Pabbi minn heitir Ólafur Ingi '84 síðan á ég stóra systur sem heitir Bryndís Ösp og hún er sko besta stóra systirinn.:o)
|
|
|
Annað:
Nafnið mitt þýðir:
Gunnar: Nafn þetta er myndað af forliðnum "Gunn" sem merkir orrusta og viðskeytinu "ar" sem merkir hermaður Breki: ýmist talið að nafnið merki brotsjór, blindsker eða eldur PABBI ER MAÐURINN.... Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður. En það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur. Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og annað fólk. Samt veit hann allt!! svo þegar maður verður aðeins eldri og það er hægt að fara að leika við mann og kenna manni ýmislegt finnst honum rosa gaman. Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda. PABBI ER BESTI MAÐUR Í HEIMI MAMMA ER KONAN........... Sem kemur manni i heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda. þegar maður eldist og ætti kannski að geta hugsað meira um sig sjálfur, til dæmis að vera í hreinum fötum, og laga til í herberginu sínu leyfir mamma manni það ekki því hún er vön að hugsa svo vel um barnið sitt. Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda, þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til. MAMMA ER BESTA KONA Í HEIMI.
|
| Þú ert gestur nr. 2552 |